Heimili og skóli voru svo vinsamlega að leyfa okkur að birta á síðu okkar reglur um vinahópa, sem þau hafa gefið út.

Prentvæna útgáfu má finna hér.

 
Vinahópar er verkefni sem foreldrar stýra sjálfir. Markmiðið er að styrkja tengsl nemenda í bekknum og stuðla að góðum bekkjaranda.
 
Reynslan af vinahópum hefur verið mjög jákvæð. Talið er að með vinahópum innan bekkja sé verið að vinna markvisst forvarnarstarf, einnig er bent á vinahópa sem leið til að vinna úr eineltismálum.  Markmiðið með vinahópum er fyrst og fremst að skapa jákvæð samskipti innan nemendahópsins, en einnig að auka tilfinningu barnanna fyrir því að okkur foreldrum standi ekki á sama um félagslega velferð þeirra. Með því að koma á vinahópum erum við að leggja grunninn að farsælum samskiptum barnanna á unglinsárunum þar sem öryggi barnanna og félagsleg samtrygging foreldra skiptir mjög miklu máli.
 
 Lagt er til að í hverjum hóp séu 4 nemendur (hér er haft í huga að börnin komist í einn bíl ef það er farið eitthvað).
 
 Mikilvægt er að hafa samráð við bekkjarkennara í byrjun um skiptingu nemenda í hópa. Hafa verður í huga að blanda saman sterkum og veikum einstaklingum.
 
 Hver hópur hittist á u.þ.b. tveggja vikna fresti. Þetta þarf ekki endilega að vera bundið við laugardaga eða sunnudaga. Föstudagskvöld gætu t.d. hentað einhverjum.
 
 Foreldrar/foreldri skiptast á að vera með hópana þannig að eftir tvo mánuði ættu allir foreldrar að hafa verið með hóp einu sinni Þannig eru einungis foreldrar/foreldri eins barns með hópnum hverju sinni.
 
 Eftir tvo mánuði eru nýjir hópar myndaðir og leikurinn endurtekinn.
 
 Ýmislegt er hægt að gera með hópnum og þarf alls ekki að kosta mikið. Hér á eftir koma nokkrar hugmyndir sem reyndar hafa verið í öðrum skólum:
 
Föndra/spila
Spjalla saman yfir kakobolla og meðlæti
Baka köku/búa til pizzu
Gönguferðir (t.d. með nesti)
Fjöruferð
Heimsækja vinnustað
Skíði/skautar
Sund
Hjólaferð (t.d. með nesti)
Fara á söfn (bókasafn, listasöfn...)
 
Ýmislegt annað kemur til greina og um að gera að halda kostnaði í lágmarki.
 
 
 
Nokkrir punktar frá erindi Birnu Sigþórsdóttur, Lækjarskóla, Hafnarfirði, flutt á Foreldraþingi 2000
 
 
 
“Hópastarf sem stuðlar að betri samskiptum innan bekkja og eykur félagsfærni nemenda. Í hverjum hóp eru 4-5 nemendur. Undir stjórn foreldra hittist hópurinn nokkrum sinnum og gerir eitthvað saman. Að kynnast bekkjarfélögum sínum á öðrum vettvangi en bara í skóla er skemmtilegt. Umburðarlyndi eykst og sjóndeildarhringurinn víkkar. Foreldrar kynnast bekkjarsystkynum barna sinna og þekkja þau öll með nafni. Löngu eftir að hópastarfi er hætt halda foreldrar barnanna áfram að fylgjast með bekkjarfélögunum. Við tökum þau tali þegar við hittum þau, spyrjum hvernig gangi. Fyrirhafnarlaust veitum við þeim aðhald og sendum þau skilaboð að okkur er ekki sama.”
 
 
Nokkrir punktar frá umræðunni:
 
Foreldrar eru boðaðir á fund, hugmyndin rædd og útskýrð, nauðsynlegt að foreldrar samþykki að taka þátt í verkefninu.
 
Börnunum er raðað (ekki dregið) í hópa, mikilvægt að kennarinn taki þátt í því. Æskilegast er að hafa 4 börn í hóp, 2 stelpur og 2 stráka. Hver hópur hittist þrisvar, síðan er skipt og raðað aftur upp á nýtt o.s.frv. Foreldrarnir ráða hvenær hópurinn hittist, kl. hvað, hvenær (eftir vinnu – eftir skóla - á laugardegi). Forðast videogláp og tölvuleiki. Allt innan skynsamlegra marka, kostnaður í lágmarki. Þetta á ekki að vera samkeppni milli foreldra hver er með flottasta heimilið, stórkostlegustu veisluna eða þess háttar. Það er hægt að fara í gönguferðir, hjólaferðir, baka, spila, á skauta, í sleðaferð, í bæinn í strætó, fara í leiki. Hugmyndin er að gefa þeim færi á að kynnast, vera saman í sínu daglega umhverfi.
 
Það eru alltaf einhverjir sem ekki vilja eða geta tekið þátt í verkefninu. Það er mikilvægt að muna að einmitt börn þessara foreldra þurfa yfirleitt mest á því að halda að vera með. Við látum það ekki stoppa okkur og höldum áfram eins og ekkert hafi í skorist.
 

Viðburðadagatal

<< maí 2012 >>
M Þ M F F L S
 123456
78910111213
14151617181920
21222324252627
28293031