Forsíða > Nemendur > Sundstigin í 1. - 10. bekk

Sundstigin í 1 - 10. bekk.

Það sem nemendur þurfa að geta framkvæmt í lok námskeiðs:
1. sundstig (samræmd markmið í 1. bekk)
·         Staðið í botni og andað að sér, andlitið fært í kaf og andað frá sér. Endurtekið 10 sinnum.
·         Flot á bringu eða baki með eða án hjálpartækja.
·         Ganga með andlit í kafi 2,5 metra eða lengra.
·         Bringusundsfótatök við bakka, með eða án hjálpartækja.
2. sundstig (samræmd markmið í 2. bekk)
·         Marglyttuflot með því að rétta úr sér.
·         10 m bringusund með eða án hjálpartækja.
·         10 m skólabaksundsfótatök með eða án hjálpartækja.
·         Spyrna frá bakka og renna með andlit í kafi, að lágmarki 2,5m.
·         Hoppa af bakka í laug.
3. sundstig (samræmd markmið í 3. bekk)
·         12 m bringusund.
·         12 m skólabaksund með eða án hjálpartækja.
·         6 m skriðsundsfótatök með andlit í kafi og arma teygða fram.
·         6 m baksundsfótatök með eða án hjálpartækja.
·         Kafað eftir hlut á 1 - 1,5 m dýpi.
4. sundstig (samræmd markmið í 4. bekk)
·         25 m bringusund.
·         15 m skólabaksund.
·         12 m skriðsund með eða án hjálpartækja.
·         12 m baksund með eða án hjálpartækja.
·         Flugsundsfótatök með eða án hjálpartækja
·         Stunga úr kropstöðu af bakka eða stiga.
5. sundstig (samræmd markmið í 5. bekk)
·         75 m bringusund.
·         25 m skólabaksund.
·         25 m skriðsund með sundfit.
·         12 m baksund.
·         Stunga af bakka.
·         Hlutur sóttur á 1-2 m dýpi eftir þriggja metra kafsund.
·         Troða marvaða í 20-30 sekúndur.
·         10 m flugsundsfótatök með eða án hjálpartækja.
6. sundstig (samræmd markmið í 6. bekk)
·         200 m bringusund, viðstöðulaust.
·         50 m skólabaksund.
·         25 m skriðsund.
·         25 m baksund.
·         25 m bringusund á tíma. Lágmark 35.0 sek.
·         15 m björgunarsund (skólabaksundsfótatök).
·         8 m kafsund.
·         10 m flugsund með eða án hjálpartækja.
7. sundstig (samræmd markmið í 7. bekk)
·         300 m bringusund, tímamörk: synt á minna en 10 mínútum.
·         50 m skólabaksund, stílsund.
·         15 m björgunarsund með jafningja (skólabaksundsfótatök).
·         8 m kafsund, stílsund.
        Val nemenda:
·         50 m bringusund á tíma.
·         25 m skriðsund á tíma.
·         Þrjú leysitök: grip um báða úlnliði - gripið um framhandlegg með báðum höndum - grip um hálsinn framan.
·         Lífgunaraðferð (hvernig á að opna öndunarveg, hvernig á að leggja þann sem blása skal o.s.frv.) geta úrskýrt í orðum.
8. sundstig (samræmd markmið í 8. bekk)
·         400 m frjáls aðferð, viðstöðulaust.
·         75 m skriðsund.
·         50 m baksund.
·         25 m flugsund með eða án hjálpartækja.
·         Tímataka: 50 m bringusund, lágmark: 1:05,0.
·         Tímataka: 25 m skriðsund, kágmark: 30,0 sek .
·         Troða marvaða í 1 mínútu.
·         Synda 8 metra kafsund að hlut á botni laugar. Syndir með hann til baka (ekki í kafi). Æfingin endurtekin eftir 10 sek.
9. sundstig (samræmd markmið í 9. bekk)
·         500 metra þolsund. Nemandi notar að lágmarki 3 sundaðferðir. Ekki skal synda hverja aðferð skemur en 75 metra.
·         Sund í fötum: stunga af bakka, 50 metra fatasund þar af 8-10 metra kafsund. Troða marvaða og afklæðast á sundi. Synt sömu vegalengd til baka.
·         25 m flugsund.
·         Tímataka: 100 m bringusund Drengir 2:15 stúlkur 2:20.
·         Tímataka: 50 m skriðsund Drengir 60 sek stúlkur 1:02.
·         Tímataka: 25 m baksund - Drengir 32 sek - stúlkur 34 sek.
10. sundstig (samræmd markmið í 10. bekk)
·         Bringusund í 20 mínútur. Lágmarksvegalengd 600 metrar.
·         50 m bringusund, stílsund.
·         Björgun af botni laugar og 25 metra björgunarsund.
·         12 metra kafstund, stílsund.
·         Tímataka: 100 m bringusund.
·         Tímataka: 50 m skriðsund.
·         Tímataka: 50 m baksund.
·         Tímataka: 25 m flugsund.
·         Þrjú leysitök: Grip í fatnað framan frá - grip um háls aftan frá - grip um brjóst aftan frá.
·         Ein lífgunaraðferð.