Hlutverk náms- og starfsráðgjafa
Hlutverk náms - og starfsráðgjafa er að vinna með nemendum, forráðamönnum, kennurum, skólastjórnendum og öðrum starfsmönnum skólans að ýmiss konar velferðarstarfi er snýr að námi, líðan og framtíðaráformum nemenda.
Samvinna milli nemanda og náms- og starfsráðgjafa er grundvöllur þess að ráðgjöf nýtist nemandanum.
Aðstoð náms- og starfsráðgjafa miðar að því að nemandinn læri að taka ákvarðanir sem skipta hann máli.
Nemendur geta leitað til náms- og starfsráðgjafa að eigin frumkvæði eða beðið umsjónarkennara að hafa milligöngu um viðtal.





