Náms- og starfsráðgjöf
Náms- og starfsráðgjöf er fræðsla eða ráðgjöf sem veitt er einstaklingi eða hópi við val á námsleiðum og/eða störfum.
Ráðgjöfin miðar að því að nemendur efli og þroski þekkingu á sjálfum sér, námsleiðum, störfum og atvinnulífi til að byggja ákvörðun um nám eða starf að loknum grunnskóla á raunhæfum grunni.
Aðstoð náms- og starfsráðgjafa felst m.a. í:
Viðtölum
- Aðstoða nemendur við að leita upplýsinga um nám, skóla, störf og atvinnumarkaðinn
- Aðstoða nemendur við að finna eigin áhugasvið, gildismat og hæfileika
- Að kenna leikni við ákvarðanatöku





