Persónuleg ráðgjöf og stuðningur
Persónuleg ráðgjöf felst í að veita nemendum og forráðamönnum ýmiss konar aðstoð og stuðning svo að hver nemandi nái sem mestum árangri í sínu námi.
Persónuleg mál nemenda geta verið af ýmsum toga s.s. námsleg, félagsleg, tilfinningaleg eða tengd samskiptum. Námsráðgjafi aðstoðar nemendur við að leita lausna.
Náms- og starfsráðgjafi er bundinn þagnarskyldu um einkamál nemenda.





