Forsíða > Tilkynningar

Laufabrauðsdagur í Holtaskóla

25.11.2009

Fimmtudaginn 26. nóvember 2009 verður foreldrafélagið með laufabrauðsbakstur í sal Holtaskóla kl. 16:30 - 18:30. Laufabrauðin verða seld á staðnum og eru 6 laufabrauð saman í pakka á 500 kr. (ath. aðeins reiðufé). Hver og einn sker út og skreytir að eigin vild og fer steikingin fram í heimilisfræðistofunni.

Mikilvægt er að fullorðinn komi með börnunum, bæði til að vera þeim innan handar en ekki síst vegna steikingarinnar. Feitin er heit og því viljum við ekki börnin inn í eldhúsið nema í fylgd með fullorðnum!

Við biðjum alla um að koma með að hámarki 6 laufabrauð til steikingar í einu svo röðin gangi hratt fyrir sig. Tíundi bekkur mun selja pizzu og gos á vægu verði.

Vinsamlega komið með að heiman:

  • Laufabrauðshjól, einnig hægt að nota hnífa.
  • Skurðabretti og hnífa.
  • Ílát undir steikta laufabrauðið.
  • Jólaskapið :)


Til Baka