Forsíða > Tilkynningar

Holtaskóli sigraði sinn riðil í Skólahreysti

03.03.2011

Holtaskóli tók þátt í undankeppni Skólahreysti í dag, fimmtudaginn 3. mars.  Holtskælingar eða réttara sagt hin fjögur fræknu gerðu sér lítið fyrir og sigruðu sinn riðil með glæsibrag og tryggðu sér því sæti í úrslitum keppninnar sem fram fer fimmtudaginn 28. april í Laugardalshöll.  Lið Holtaskóla skipa þau Birkir Freyr Birkisson, Elva Dögg Sigurðardóttir, Eyþór Guðjónsson og Sólný Sif Jóhannsdóttir.  Innilegar hamingjuóskir krakkar.


Til Baka