Forsíða > Tilkynningar

Holtaskóli stóð uppi sem sigurvegari á Skólaleikum Keflavíkur

05.05.2011

Skólaleikar Keflavíkur á miðstigi fóru fram í dag í íþróttahúsinu við Sunnubraut.  Eins og nafnið gefur til kynna voru það grunnskólarnir í Keflavík sem öttu kappi í margvíslegum skemmtilegum íþróttum þ.e. boðhlaupi, skotbolta, reipitogi, boccia og körfubolta.  Nemendur Holtaskóla stóðu sig ákaflega vel og hlutu bikar fyrir sigur í samanlögðum árangri úr fyrrgreindum íþróttagreinum.  Nemendur úr Heiðarskóla þóttu standa sig best í hvatningunni og fengu að launum bikar.  Gríðarleg stemning var fyrir keppninni og stóðu allir nemendur sig vel í keppni og hvatningu.  Til hamingju Holtaskóli.


Til Baka