Forsíða
> Tilkynningar
Vorferðalög
23.05.2011Þessi vika verður undirlögð í vorferðalögum hér í Holtaskóla. Í dag ,mánudag, lögðu 7. bekkingar af stað í fimm daga ferðalag norður í land nánar tiltekið að Reykjum í Hrútafirði einnig fóru 1. bekkingar í Sólbrekkuskóg og 3. bekkingar í Húsdýragarðinn. Á morgun , þriðjudag, fara 4. bekkingar í Viðey og 5. bekkingar ætla að skoða orkuverið Jörð og ýmislegt annað. Einnig leggja 10. bekkingar af stað norður í Skagafjörð þar sem þau ætla að vera fram á föstudag í góðu yfirlæti. Á miðvikudaginn fara síðan nemendur í 2. bekk í Sandgerði og Garð, 6. bekkingar fara í sund og keilu, 8. bekkingar fara Reykjaneshringinn og 9. bekkingar fara í Nauthólsvík.
Til Baka





