Fréttir af skólaferðalagi 7. bekkinga
25.05.2011Þessar línur voru að berast frá fylgdarfólki 7. bekkinga sem eru á Reykjum í Hrútafirði.
Enn gengur allt rosalega vel hjá okkur. Veðrið orðið voða gott og loksins komið vor. Krakkarnir eru að standa sig með prýði og eru Holtaskóla til sóma. Í gærkvöldi var kvöldvaka sem var í höndum krakkanna úr öllum skólunum sem eru hér og gekk hún svona líka vel. Í kvöldkaffinu var svo kleinuhringur og kremkex og var liðið orðið ansi hresst ;) en við skelltum öllum út í fótbolta í hálftíma og allir komu hressir og kátir inn og gekk vel að sofna. Þeir sem fóru í byggðasafnið í gær fengu að smakka hákarl og voru flestir sem smökkuðu en þeim fannst þetta þó misgott.
Í dag er margt í boði, náttúrufræði þar sem farið er í fjöruferð, undraheimur auranna, íþróttir og sund, byggðasafnið og stöðvaleikir.
Með kveðju,
Hrafnhildur, Jóhanna og Sigurbjörg
Til Baka





