Forsíða > Tilkynningar

Fræðslufundur um net- og tölvuleikjafíkn

18.11.2008

Ræður tölvan lífi barnsins þíns?
Net- og tölvuleikjafíkn er raunverulegt og vaxandi vandamál en hingað til hafa foreldrar e.t.v. ekki verið nægjanlega vakandi fyrir þeim hættum sem of mikil tölvunotkun getur haft í för með sér fyrir börn þeirra og unglinga.

Miðvikudaginn 19. nóvember nk. milli kl. 17.00 - 19.00 verður í Duushúsinu opinn fræðslufundur um net- og tölvuleikjafíkn og kennsla á Parental control, forrit sem stýrir netnotkun.

Fyrirlesarar eru:
Eyjólfur Örn Jónsson sálfræðingur
Hafþór B. Birgisson tómstunda– og félagsmálafræðingur

Kaffi á könnunni .


Til Baka