Forsíða
> Tilkynningar
Samræmd könnunarpróf - morgunmatur í boði foreldrafélagsins
16.09.2011Samræmd könnunarpróf fara fram í næstu viku, 19. - 23. september. Nemendur í 10. bekk fara í íslensku mánudaginn 19., ensku þriðjudaginn 20. og stærðfræði miðvikudaginn 21. Nemendur í 4. og 7. bekkjum fara í íslensku fimmtudaginn 22. og stærðfræði föstudaginn 23. Foreldrafélagið ætlar líkt og í fyrra að bjóða nemendum í morgunmat fyrir prófin (rúnstykki og safa). Morgunmatur hefst kl. 08:30 og hvetjum við alla nemendur að mæta og eiga góða stund saman fyrir prófin. Prófin sjálf hefjast kl. 09:00. Við hér í Holtaskóla viljum þakka foreldrafélaginu fyrir flott framtak.
Til Baka





