Örnámskeið fyrir bekkjarfulltrúa, 3. nóvember
01.11.2011FFGÍR boðar alla bekkjarfulltrúa Háaleitis-, Njarðvíkur-, Holta-, Heiðar-, Myllubakka-, og Akurskóla á námskeið. Námskeiðið verður haldið fimmtudaginn 3.nóvember 2011 kl.19:30 til 21:30 á sal Njarðvíkurskóla. Á námskeiðinu verður farið yfir hlutverk og ábyrgð bekkjarfulltrúa. Helga Margrét Guðmundsdóttir mun ræða málin út frá HANDBÓK Heimilis og skóla. Fjallað verður um ávinninginn af samstarfi foreldra og hvernig hægt er að virkja fleiri foreldra. Námskeiðið byggist upp á hvatningu og umræðum um hvað er gott og hvað má bæta í starfi foreldra innan skólans. Helga Margrét Guðmundsdóttir, félags- og tómstundafræðingur, er sjálfstætt starfandi ráðgjafi sem hefur mikla reynslu af samstarfi heimilis og skóla. Þeir foreldrar sem hafa sótt námskeið Helgu Margrétar hafa verið sammála um að námskeiðin séu bæði gagnleg og skemmtileg.
Til Baka





