Forsíða > Tilkynningar

Foreldrafélagið laufabrauðsbakstur

27.11.2008

Foreldrafélagið verður með laufabrauðsbakstur í sal Holtaskóla, fimmtudaginn 27. nóvember nk. kl. 17 – 19.  Laufabrauðin verða seld á staðnum og eru 6 laufabrauð saman í pakka á 500 kr (ath. aðeins reiðufé). Hver og einn sker út og skreytir að eigin vild og fer steikingin fram í heimilisfræðistofunni. 

 

Mikilvægt er að fullorðinn komi með börnunum, bæði til að vera þeim innan handar en ekki síst vegna steikingarinnar. Feitin er heit og því viljum við ekki börnin inn í eldhúsið nema í fylgd með fullorðnum!

 

Tíundi bekkur mun selja pizzu og gos á vægu verði.

Vinsamlega komið með að heiman:

 

  • Laufabrauðshjól, einnig hægt að nota hnífa.
  • Skurðabretti og hnífa
  • Ílát undir steikta laufabrauðið
  • Jólaskapið J

Foreldrafélag Holtaskóla


Til Baka