Tölum saman - Samskipti foreldra og unglinga um kynlíf
12.02.2009Foreldrafélag Holtaskóla bíður ykkur uppá fyrirlesturinn:
„Tölum saman“ Samskipti foreldra og unglinga um kynlíf
Kæra foreldri!
Býr unglingur á heimilinu? Ef svo er, þá höldum við að umræður foreldra og unglinga um kynlíf eigi heima hjá þér.
Það hefur vafalaust ekki farið framhjá nokkrum að unglingsárin eru tími mikilla breytinga sem taka á félags-, líffræði- og tilfinningalegum þáttum.
Hvernig tekst þér sem foreldi að tala um alla þá þætti sem tengjast þessum miklu breytingum í lífi barnsins þíns?
Málefni er varða kynlíf og kynhegðun eru ofarlega í huga flestra unglinga og margir foreldrar vita ekki hvernig þeir eigi að snúa sér í þeirri umræðu.
Rannsóknir sýna að ef þessi málefni eru rædd þá byrja unglingar seinna að stunda kynlíf og þeir verða ábyrgari.
Á fræðslufundinum er boðið upp á sameiginlega fræðslu fyrir foreldra og unglinga um kynlíf og kynhegðun. Fræðslufundurinn stendur í einn og hálfan klukkutíma. Foreldrafélagið stóð fyrir slíkum fyrirlestri síðast árið 2006 við mikla ánægju foreldra og unglinga.
Fyrirlesarar eru:
Dagbjört Ásbjörnsdóttir, mannfræðingur, MA
Sigurlaug Hauksdóttir, félagsráðgjafi, MA
Guðbjörg Edda Hermannsdóttir, félagsráðgjafi, MA
Staður: Salur Holtaskóla
Tími: Fimmtudagurinn 19. febrúar 2009
7. - 8. bekkur 17:30 - 19:00
9. - 10. bekkur 20:00 - 21:30
Til Baka





