Forsíða
> Tilkynningar
Börn í Reykjanesbæ - FFGÍR
09.03.2009FFGÍR (Foreldrafélög og foreldraráð grunnskólanna í Reykjanesbæ) býður foreldrum á opinn fund um ,,Börn í Reykjanesbæ og velferð þeirra" í Virkjun á Vallarheiði laugardaginn 14. mars kl. 10:00 - 15:00. Eftirfarandi málefni verða rædd á fundinum:
- Hvað verður í boði fyrir börnin okkar í sumar?
- Hvernig veður skólamálum barna okkar háttað á komandi vetri?
- Hvernig getur félagsþjónustan komið til móts við fjölskyldur?
- Hvað geta börn og foreldrar gert saman, þeim að kostnaðarlausu?
Með von um að sem flestir sjái sér fært að mæta.
FFGÍR
Til Baka





