Forsíða > Tilkynningar

PBS í Holtaskóla

13.03.2009

Mánudaginn 16. mars hefst fyrsta framkvæmdaár PBS í Holtaskóla. Nú fá allir nemendur skólans kennslu í hegðunarvæntingum. Þá vita allir til hvers ætlast er af þeim, alls staðar.

Nemendur fá viðurkenningu í formi miða sem kallast staðfesting en hann er staðfesting á hrósi. Geta nemendur fengið miðann þegar þau sýna góða hegðun og fara eftir reglum skólans. Staðfestinguna fá þau að koma með heim til að sýna en mikilvægt er að miðinn komi í skólann strax daginn eftir því við söfnum miðum bekkjarins saman og fáum umbun fyrir að standa okkur vel. Vonum að þið foreldrar takið virkan þátt í þessu með okkur.


Til Baka