Forsíða > Tilkynningar

Stærðfræðikeppni grunnskólanna

02.04.2009

Stærðfræðikeppni grunnskólanna fyrir 8., 9. og 10. bekk fór fram í FS 17. mars. Nemendur úr Holtaskóla fjölmenntu eins og alltaf og stóðu sig með prýði. Alls tóku 120 nemendur af öllum Skaganum þátt í keppninni að þessu sinni. Tíu nemendum úr hverjum árgangi var síðan boðið á lokahóf 31. mars í FS þar sem úrslit voru tilkynnt. Frá Holtaskóla urðu þess heiðurs aðnjótandi, Jón Gunnar og Elísabet úr 10. bekk, Birna úr 9. bekk og Unnar úr 8. bekk. Þau höfnuðu í 4-10. sæti og eru myndir af þeim inni á myndasafni.


Til Baka