Forsíða > Tilkynningar

PBS foreldrakynningar

17.04.2009

Nú gefst foreldrum kostur á að kynnast PBS í Holtaskóla.

PBS er STUÐNINGUR VIÐ JÁKVÆÐA HEGÐUN og því er mikilvægt að allir séu vel með á því hvað felst í þessu verkefni og hvernig vinnum við best saman að því að ná sem mestum árangri.

Sl. haust voru kynningarfundir þar sem farið var yfir stöðuna eins og hún var þá. Það er mikilvægt að þeir sem ekki hafa komið á kynningu noti nú tækifærið og það er ekki síður mikilvægt að þeir foreldrar sem mættu þá komi aftur nú og fræðist um hvað hefur verið gert í vetur og hvernig framkvæmdin er.  Þetta er verkefni sem byggir mjög á góðu samstarfi foreldra og skólans. 

Nú er boðið uppá þrjár kynningar.  Þriðjudaginn 21., mánudaginn 27. og þriðjudaginn 28. apríl.  Þær hefjast allar kl. 18 og stefnt er að því að þær standi að hámarki í eina klst.

Vonandi sjáumst við sem flest eitthvert þesssara kvölda.


Til Baka