Forsíða
> Tilkynningar
Lestrarsprettur 1. - 7. bekkja
30.04.2009Nemendur á miðstigi og yngsta stigi eru í lestrarátaki sem hófst mánudaginn 27. apríl og lýkur 8. maí. Átakið gengur út á það að tími sem fer í lestur er skráður og nemendur fá staðfestingu út frá því í formi kærleiksmiða (hamingja, hugrekki, hrós, vinsemd, ást.......). Kærleiksmiðarnir mynda lestrarorm sem hlykkjast um sal skólans og alla ganga, sjón er sögu ríkari. Myndir verða birtar á mánudaginn.
Til Baka





