Forsíða > Tilkynningar

Skólaferðalag 10. bekkinga

25.05.2009

Í morgun héldu 10. bekkingar ásamt fararstjórum af stað í skólaferðalag norður í Skagafjörð.  Hópurinn byrjaði á því að stoppa í Nauthólsvík þar sem mörg hraustmennin létu sig ekki muna um það að taka hressilegan sundsprett í sjónum.  Að volkinu loknu var haldið af stað aftur og áði hópurinn í  valinkunnum ,,verslunum í alfaraleið", s.s. eins og Hyrnunni og Staðarskála.  Hópurinn kom á áfangastað, þ.e. að Ljósheimum í Skagafirði klukkan rétt rúmlega 18.  Í hönd fara stórskemmtilegir dagar þar sem fjölbreyttar og fjörugar ævintýraferðir verða í forgrunni.


Til Baka