Forsíða > Tilkynningar

Fornleifauppgröftur í Höfnum

29.05.2009

Árið 2002 fundust rústir af landnámsskála í landi Reykjanesbæjar fyrir aftan Kirkjuvogskirkju í Höfnum. Nú stendur yfir rannsókn á rústunum á vegum Fornleifafræðistofunnar undir stjórn Dr. Bjarna F. Einarssonar og með hans fólki eru í för nemar í fornleifafræði við Háskóla Íslands í verklegu námi. Staðfest hefur verið að skálinn sé ekki yngri en frá árinu 900 og er hann því með elstu mannvistarleifum sem fundist hafa á Íslandi. Menningarsvið Reykjanesbæjar sem kostar rannsóknina ákvað af þessu tilefni að bjóða öllum nemendum 5. bekkjar í Reykjanesbæ, sem eru á þriðja hundrað, í vettvangsheimsókn til að líta rannsóknina með eigin augum og fræðast meira um landnámið sem þau hafa lært um í skólanum í vetur. Ýmislegt markvert hefur fundist í rústunum, sem eru mjög heillegar, m.a. glerperla, kvarnasteinn, hluti úr hnífsblaði, tinnubrot, steinn með gati sem líklega var notaður sem dyralóð og nagli. Hóparnir hafa verið einstaklega fróðleiksfúsir og skemmtilegir og fara vonandi margs vísari heim í skólann sinn eftir að hafa staðið í rústum raunverulegs landnámsskála.


Til Baka