Vorhátíð og skólaslit Holtaskóla 2009
04.06.2009Vorhátíð Holtaskóla fer fram mánudaginn 8. júní. Nemendur mæta í sína heimastofu kl. 08:45. Umsjónarkennari tekur á móti nemendum og fer með þeim í gegnum dagskrá og skipulag hátíðarinnar. Dagskráin hefst kl. 09:00 og lýkur með grillveislu í boði foreldrafélagsins kl. 11:30 fyrir nemendur í 1. – 7. bekkjum og kl. 12:00 fyrir nemendur í 8. – 10. bekkjum. Nemendur í 8. – 9. og 10. bekk hafa umsjón með leikjastöðvum og fara í brennókeppni í lokin.
Nemendur eru vinsamlegast beðnir um að klæða sig eftir veðri og taka með sér drykk og sundföt.
Dagskrá:
09:00 – 10:00 5. – 7. bekkir fara í leiki. 8. – 10. bekkir + umsjónarkennarar stýra.
1. - 4. bekkir fara í sund.
10:30 – 11:30 1. – 4. bekkir fara í leiki. 8. – 10. bekkir + umsjónarkennarar stýra.
5. – 7. bekkir fara í sund
11:30 Brennó hjá 8., 9. og 10. bekkjum.
11:30 og 12:30 Grillveisla.
Skólaslit fara fram þriðjudaginn 9. júní.
Þriðjudaginn 9. júní verða skólaslit Holtaskóla í íþróttahúsinu við Sunnubraut. Nemendur mæta beint út í íþróttahús.
Dagskrá:
09:00 1.– 4. bekkir.
10:00 5. – 7. bekkir.
11:00 8. – 10. bekkir (útskrift 10. bekkinga)
Eftir skólaslit fylgja nemendur 1. – 9. bekkja umsjónarkennurum sínum til heimastofu sinnar.
Nemendum 10. bekkja og foreldrum þeirra er boðið til kaffisamsætis að loknum skólaslitum.
Nemendur eru minntir á að vera prúðbúnir og foreldrar eru hvattir til að mæta með börnum sínum.
Kveðjur
Starfsfólk Holtaskóla
Til Baka





