Forsíða
> Tilkynningar
Inflúensa
30.08.2009Eins og flestum er kunnugt þá fer nú um heiminn inflúensa A (H1N1) svokölluð svínaflensa. Enn sem komið er eru einkennin svipuð og um árstíðabunda flensu væri að ræða. Besta og mikilvægasta vörnin er án efa hreinlæti og þar skiptir handþvottur mestu máli því snerting bein og óbein er lang algengasta smitleið milli manna. Við mælumst eindregið til þess að foreldrar haldi börnum sínum heima hafi þau einkenni flensunnar og leggjum áherslu á að nemendur séu heima við þar til þeir eru það hraustir að þeir geti tekið þátt í öllum þáttum skólastarfsins. Nánari upplýsingar um inflúensuna má finna á www.almannavarnir.is og á www.influensa.is , þar er einnig að finna bæklinginn Munum eftir inflúensunni. Verði einhverjar breytingar á skólastarfi af völdum inflúensunnar þá munum við birta upplýsingar á heimasíðu okkar og senda foreldrum nánari upplýsingar.
Til Baka




