Forsíða > Foreldrafelag > Fréttir
 

Stoðkennarinn

29.09.2009

Þriðjudagskvöldið 29. september kl. 20 verður kynning á Stoðkennaranum í Holtaskóla.
Holtaskóli greiðir fyrir aðgang af námsefni á vefnum fyrir nemendur í 9. og 10. bekk. Virkni vefjarins verður kynnt og sýnt m.a. hvernig einkunnabækurnar virka, hvernig hver notandi getur stillt sinn reikning (t.d. breytt lit á bakgrunni og lykilorði) og hvernig nemandi fær útgefið skírteini. Einnig verða helstu verkefnin sýnd þannig að foreldrar átti sig á möguleikum vefjarins og geti fylgst með gengi barna sinna.

Nú þegar eru nemendur í 9. og 10. bekk í Holtaskóla að nota vefinn þannig að þetta er kjörið tækifæri fyrir foreldra að kynnast þessum verkefnum. Sjá http://stodkennarinn.is/main/isl/

Kynningin er ætluð fyrir foreldra/forráðamenn nemenda í 9. og 10. bekk en nemendur eru hvattir til þess að mæta með.


Til Baka
 

Viðburðadagatal

<< maí 2012 >>
M Þ M F F L S
 123456
78910111213
14151617181920
21222324252627
28293031