Foreldrar sem auðlind í skólastarfi
26.10.2009Opinn fundur um foreldrasamstarf í skólum verður haldinn í Setrinu á Grand hótel fimmtudaginn 29. október næstkomandi klukkan 20:00. Charles Desforges, prófessor frá háskólanum í Exeter, er virtur fræðimaður í sínu heimalandi og þó víðar væri leitað. Hann hefur rannsakað þá auðlind sem felst í foreldrum og hefur hugsanlega verið vannýtt hingað til.
Fundurinn er samstarfsverkefni Samfoks og Heimilis og skóla. Allir foreldrar eru hvattir til að mæta en áhersla verður lögð á fyrirspurnir og umræður. Fundarstjóri verður Anna Kristín Sigurðardóttir, deildarforseti kennaradeildar Menntavísindasviðs HÍ. Aðgangur ókeypis og allir velkomnir meðan húsrúm leyfir.
Sjá nánar á www.samfok.is og www.heimiliogskoli.is
Upplýsingar um Charles Desforges
Til Baka
FORELDRAFÉLAG HOLTASKÓLA


