Forsíða > Foreldrafelag > Fréttir
 

Foreldrafélagið

19.03.2010

Foreldrafélagið minnir á heimasíðu sína http://www.holtaskoli.is/foreldrafelag/
Við erum enn að breyta henni og bæta við hana, setjum inn fréttir og myndir þegar þær berast.

Nýlega voru stofnaðar bekkjarsíður, síður sem ætlaður eru sem vettvangur til að deila með okkur hinum hvað bekkirnir eru að gera saman, sjá hér til hliðar.
Enn sem komið er eru aðeins fréttir af starfi í 3. bekk, en við viljum endilega fá fréttir frá öllum árgöngum.
Ef til eru myndir frá einhverjum viðburðum væri gaman að fá þær líka. Þannig verða til dýrmætar upplýsingar um það sem er að gerast í bekkjunum.

Sendið okkur allar fréttir af bekkjunum og myndir í gegnum netfangið ffh@holtaskoli.is

Með kveðju,
Foreldrafélag Holtaskóla


Til Baka
 

Viðburðadagatal

<< maí 2012 >>
M Þ M F F L S
 123456
78910111213
14151617181920
21222324252627
28293031