Forsíða > Foreldrafelag > Fréttir
 

Skóli og skólaforeldrar - erindi fyrir foreldra

07.11.2010

Fyrirlestur mánudaginn 15.nóvember kl. 17:30 til 18:30 í FS

FFGÍR hefur fengið Nönnu Kristínu Christiansen til að halda erindi um Skóla og skólaforeldra og býður alla skólaforeldra og kennara velkomna á meðan húsrúm leyfir.
Í erindinu verður m.a. fjallað um hvernig góðir skólaforeldrar ættu að vera til að börnum þeirra farnist sem best?
Rannsóknir sýna að áhrif skólaforeldra á námsárangur og líðan barna þeirra í skólanum eru enn meiri en almennt var álitið. Foreldrar eru því sérstaklega hvattir til að koma og fræðast um hvernig þeir geti gert betur. Í lok erindisins verður boðið upp á fyrirspurnir og umræður.
Nanna Kristín er höfundur bókarinnar Skóli og skólaforeldrar - ný sýn á samstarfið um nemandann. Bókin hefur fengið góða dóma bæði frá fagfólki og skólaforeldrum.
 
 ,,Mér finnst að allir kennarar þurfi að lesa þessa bók, svo ég tali nú ekki um foreldra" af vef bókarinnar: http://www.skolaforeldrar.com
Foreldrar látum þetta tækifæri ekki framhjá okkur fara. Erindið verður flutt mánudaginn 15.nóvember kl.17:30 til 18:30 í fyrirlestrasal Fjölbrautaskóla Suðurnesja við Sunnubraut.

Til Baka
 

Viðburðadagatal

<< maí 2012 >>
M Þ M F F L S
 123456
78910111213
14151617181920
21222324252627
28293031