Forsíða
> Fréttir
Laufabrauðsdagur í Holtaskóla
25.11.2009Fimmtudaginn 26. nóvember 2009 verður foreldrafélagið með laufabrauðsbakstur í sal Holtaskóla kl. 16:30 - 18:30. Laufabrauðin verða seld á staðnum og eru 6 laufabrauð saman í pakka á 500 kr. (ath. aðeins reiðufé). Hver og einn sker út og skreytir að eigin vild og fer steikingin fram í heimilisfræðistofunni.
Mikilvægt er að fullorðinn komi með börnunum, bæði til að vera þeim innan handar en ekki síst vegna steikingarinnar. Feitin er heit og því viljum við ekki börnin inn í eldhúsið nema í fylgd með fullorðnum!
Við biðjum alla um að koma með að hámarki 6 laufabrauð til steikingar í einu svo röðin gangi hratt fyrir sig. Tíundi bekkur mun selja pizzu og gos á vægu verði.
Vinsamlega komið með að heiman:
- Laufabrauðshjól, einnig hægt að nota hnífa.
- Skurðabretti og hnífa.
- Ílát undir steikta laufabrauðið.
- Jólaskapið :)
Til Baka




