Forsíða
> Fréttir
Jólaball grunnskólanna í Reykjanesbæ
14.12.2009Á morgun þriðjudaginn 15. desember verður hið árlega jólaball grunnskólanna í Reykjanesbæ. Skemmtunin fer fram í "OFFANUM" en það er skemmtistaður á Ásbrú (staðsett fyrir ofan Háaleitisskóla). Ballið hefst klukkan 20:00 og lýkur klukkan 23:00. Vinsælasta hljómsveit landsins, Ingó og veðurguðirnir spila fyrir dansi. Strætóferðir verða eftir ball. Miðasala í forsölu er hafin í skólanum og er hjá Guðrúnu skólaritara. Miðinn þar kostar 1.500 krónur en hann kostar 2.000 ef nemendur kjósa að kaupa hann í OFFANUM. Forsölu lýkur þriðjudaginn kl. 15.
Á miðvikudaginn verður jólaball miðstigsnemenda í Reykjanesbæ. Ballið er haldið í Fjörheimum frá klukkan 17:00 - 18:30. Það kostar 500 krónur að njóta þessarar skemmtunuar og það er sjoppa á staðnum. Forsala aðgöngumiða er hafin.
Til Baka




