Forsíða > Fréttir

Ræðukeppni Holtaskóla

11.02.2010

Í dag fimmtudaginn 11. febrúar fór fram ræðukeppni Holtaskóla á unglingastigi.  ,,Team Awesome"  með þau Helenu Ósk Árnadóttur, Sigurrósu Þorgrímsdóttur, Birki Frey Birkisson og Elvar Inga Ragnarsson innanborðs  sigraði í hörkuspennandi keppni þar sem rætt var um hvort hækka ætti bílprófsaldurinn í 18 ár.  Sigurrós Þorgrímsdóttir var valin ræðumaður dagsins.  Framundan er ræðukeppni grunnskóla Reykjanesbæjar og verða þau Sigurrós Þorgrímsdóttir, Helena Ósk Árnadóttir, Elvar Ingi Ragnarsson og Snorri Már Gunnarsson fulltrúar Holtaskóla í þeirri keppni.   


Til Baka