Forsíða
> Fréttir
Forskólatónleikar
04.03.2010Hinir árlegu skólatónleikar Forskóladeildar Tónlistarskóla Reykjanesbæjar verða haldnir á sal Holtaskóla, þriðjudaginn 9. mars kl. 8.50. Þar koma fram nemendur í Forskóla 2,
(2. bekkur) ásamt lúðrasveit og rokkhljómsveit, skipuðum nemendum í Tónlistarskóla Reykjanesbæjar.
Einnig verða tónleikar með sömu efnisskrá í Íþróttamiðstöð Njarðvíkur, um kvöldið kl. 19.30.
Þá bætast í hópinn nemendur í forskóla 2 úr öllum hinum grunnskólum bæjarins. Á sviðinu verða því á þriðja hundrað hljóðfæraleikarar.
Aðgangur er ókeypis og allir velkomnir.
Til Baka





