Forsíða
> Fréttir
Starfskynning 10. bekkinga 28. maí 2010
28.05.2010Samkvæmt hefðinni í Holtaskóla voru nemendur í 10. bekk að vinna lokaverkefni dagana 21. - 28. maí. Lokaverkefnið felst í því að nemendur afla upplýsinga um starf sem þeir draga, afla upplýsinga um starf að eigin vali, fara í starfskynningu einn dag og að reikna út laun að frádregnum skatti, lífeyrissjóði og stéttarfélagsgjaldi ásamt því að finna út hver útgjöld 19 ára manneskju væru ef viðkonandi sæi um sig sjálf(ur). Niðurstaða nokkurra nemenda var að þeir myndu aldrei flytja að heiman því það væri of dýrt. Afrakstur vinnunnar var síðan kynntur á sal skólans föstudaginn 28. maí. Kynningin var mjög vel unnin og afskaplega skemmtileg.
Til Baka





