Forsíða > Fréttir

Vorferðalög

31.05.2010

Í síðustu viku fóru flestir árgangar Holtaskóla í vorferðalög.  1. bekkir fóru í Sólbrekkuskóg, 3. bekkir fóru í Reykjavík, nánar tiltekið á skauta í Egilshöll, 4. bekkir fóru út í Viðey, 5. bekkir fóru á sýninguna Orkuverið Jörð og síðan í Reykjavík, 6. bekkir fóru í Reykjavík, 7. bekkir fóru í Grindavík og Sólbrekkuskóg og 9. bekkir fóru austur fyrir fjall og gistu eina nótt í Hlíðardalsskóla.  Í dag, mánudaginn 31. maí lögðu 10. bekkingar af stað í skólaferðalag í Skagafjörðinn sem varir fram á fimmtudag.  Á miðvikudaginn fara nemendur í 2. bekkjum í heimsókn í Fræðasetrið í Sandgerði.


Til Baka