Forsíða > Fréttir

Líf og fjör hjá 10. bekkingum í Skagafirði

02.06.2010

Það er í nógu að snúast hjá 10. bekkingum sem lögðu af stað í skólaferðalag í Skagafjörð á mánudaginn.  Í gær fóru krakkarnir í klettasig og á skytterí.  Í dag stendur til að skoða Blönduvirkjun, síðan verður farið í litbolta og þar á eftir í sjóstöng og sund.  Krakkarnir hafa það gott og una sér vel í sveitinni.  Bestu kveðjur frá fararstjórunum þeim Ásu, Guðrúnu og Gulla.


Til Baka