Forsíða > Fréttir

Vorhátíð og skólaslit Holtaskóla 2010

02.06.2010

Nemendur mæta í heimastofu kl. 08:45. Dagskráin hefst kl. 09:00 og lýkur með grillveislu í boði foreldrafélagsins kl. 11:30 fyrir nemendur í 1. – 7. bekkjum og kl. 12:00 fyrir nemendur í 8. – 10. bekkjum. 
Nemendur í 8. – 9. og 10. bekk hafa umsjón með leikjastöðvum og fara í brennókeppni í lokin.

Nemendur eru vinsamlegast beðnir um að klæða sig eftir veðri og taka með sér drykk og sundföt.   
 
Dagskrá:
 
09:00 – 10:00 5. – 7. bekkir fara í leiki. 
8. – 10. bekkir + umsjónarkennarar stýra.

1. - 4. bekkir fara í sund.
10:30 – 11:30 1. – 4. bekkir fara í leiki. 
8. – 10. bekkir + umsjónarkennarar stýra.
5. – 7. bekkir fara í sund
11:30   Brennó hjá 8., 9. og 10. bekkjum.
11:30 og 12:15  Grillveisla.
                   
       
Gera má ráð fyrir að 1. – 7. bekkingar verði komnir heim um kl.12:00.
 

 
Mánudagurinn 7. júní er starfsdagur, nemendur eru í fríi.

 
Skólaslit fara fram þriðjudaginn 8. júní.
 
Þriðjudaginn 8. júní verða skólaslit Holtaskóla á sal Fjölbrautaskóla Suðurnesja. Nemendur mæta beint út í Fjölbrautaskóla.
 
Dagskrá:
09:00             1.– 4. bekkir.
10:00             5. – 7. bekkir.
11:00             8. – 10. bekkir (útskrift 10. bekkinga)
Eftir skólaslit fylgja nemendur 1. – 9. bekkja umsjónarkennurum sínum til heimastofu sinnar.
Nemendur eru minntir á að vera snyrtilega til fara og foreldrar eru hvattir til að mæta með börnum sínum.
Að skólaslitum loknum er nemendum 10. bekkja og foreldrum þeirra boðið til kaffisamsætis á sal Holtaskóla.
 
Kveðjur
Starfsfólk Holtaskóla


Til Baka