Forsíða > Fréttir

Jólabingó

08.12.2011

Jólabingó Holtaskóla verður haldið í næstu viku. Þar verður keppt um hina ýmsu jólalegu vinninga.

Yngsta stig verður með jólabingóið þriðjudaginn 13. desember kl. 17:30.

Mið- og elsta stig verður svo með jólabingó miðvikudaginn 14. desember kl. 17:30.

Foreldrum er meira en velkomið að mæta með og taka þátt.

Bingóspjaldið kostar 200 kr. og hægt er að kaupa tvö spjöld á 300 kr.

Sjoppan verður opin en þar má kaupa ýmiskonar sælgæti, gos og svo kaffi fyrir eldri kynslóðirnar.

Við hlökkum til að sjá ykkur sem flest á jólabingó Holtaskóla!

Fyrir hönd nemendaráðs Holtaskóla,

Sigrún Birta


Til Baka