Forsíða > Fréttir

Verkfærakistan og Leitir.is

09.12.2011

Verkfærakistan

Í verkfærakistunni er að finna upplýsingar um hvernig á að setja upp bókmennta- og heimildaritgerðir í bæklingnum „Ritsnillingar Holtaskóla“. Hægt er að skoða allan textann eða bara þann hluta sem þið eruð að leita að hverju sinni. Slóðin er http://www.holtaskoli.is/Nemendur/VERKFAERAKISTAN/

Leitir.is

Landskerfi bókasafna kynnir nýjan leitarvef leitir.is
Á vefnum býðst aðgengi á einum stað að fjölbreyttum safnkosti bókasafna á Íslandi og efni valinna sérsafna. Kerfið veitir upplýsingar um safnkost og aðgang að rafrænu efni hvort sem um er að ræða texta eða myndrænt efni. Jafnframt eru rafrænar tímaritsgreinar og gagnagrunnar í hvar.is leitarbær í gegnum leitir.is

Tengill er vinstra megin á forsíðu Holtaskóla.


Til Baka