Forsíða > Fréttir

2. október 2009

Frí vegna starfsdaga

Starfsdagar verða í Holtaskóla dagana 5. - 7. október (mánudag - þriðjudag - miðvikudag).  Nemendur eru í fríi þessa daga.  ...
Lesa meira

1. október 2009

Viðbragðsáætlun Almannavarna

Viðbragðsáætlun Almannavarna fyrir Holtaskóla er komin á netið. Hún er undir flipanum „Skólinn“. ...
Lesa meira

29. september 2009

Íþróttadagur Holtaskóla

Íþróttadagur Holtaskóla fer fram þriðjudaginn 29. september.  Ýmsir viðburðir tengdir íþróttadeginum verða í gangi fram að hádegi en hefðbundin kennsla fer fram eftir hádegi. ...
Lesa meira

25. september 2009

Líf og fjör á Reykjum

Skólaferðalagi 7. bekkinga lýkur í dag, föstudag.  Áætlað er að hópurinn komi heim milli klukkan 15:30 og 16.  Nemendur hafa verið til fyrirmyndar í ferðalaginu og tekið þátt í öllum viðburðum af lífi og sál. ...
Lesa meira

22. september 2009

Allt gengur vel á Reykjum

Ferðalagið á Reyki gekk ákaflega vel.  Krakkarnir í 7. bekk una sér vel í leik og starfi í Hrútafirðinum. ...
Lesa meira

21. september 2009

Skólabúðir 7. bekkinga að Reykjum í Hrútafirði

Í dag lögðu 7. bekkingar ásamt fylgdarliði af stað í skólabúðir að Reykjum í Hrútafirði.  Hópurinn verður á Reykjum í fimm daga eða fram á föstudag. Við munum flytja ykkur fréttir af ferðalöngunum þegar þær berast. ...
Lesa meira

12. júní 2009

Innkaupalistar 2009-2010

Innkaupalistar fyrir skólaárið 2009 - 2010 eru komnir inn á heimasíðuna. Smellið á flipann Hagnýtt og þar vinstra megin er tengill á innkaupalista. ...
Lesa meira

4. júní 2009

Vorhátíð og skólaslit Holtaskóla 2009

Vorhátíð Holtaskóla fer fram mánudaginn 8. júní.  Nemendur mæta í sína heimastofu kl. 08:45.   Umsjónarkennari tekur á móti nemendum og fer með þeim í gegnum dagskrá og skipulag hátíðarinnar.   Dagskráin hefst kl. 09:00 og lýkur með grillveislu í boði foreldrafélagsins kl. 11:30 fyrir nemendur í 1. – 7. bekkjum og kl. 12:00 fyrir nemendur í 8. – 10. bekkjum.   Nemendur í 8. – 9. og 10. bekk hafa umsjón með   leikjastöðvum og fara í brennókeppni í lokin. Nemendur eru vinsamlegast beðnir um að klæða sig eftir veðri og   taka með sér drykk og   sundföt.        Dagskrá: 09:00 – 10:00            5. – 7. bekkir fara í leiki.   8. – 10. bekkir + umsjónarkennarar stýra.         1.   -   4.   bekkir fara í sund. 10:30 – 11:30            1. –   4. bekkir fara í leiki.   8. – 10. bekkir + umsjónarkennarar stýra.                                    5. – 7. bekkir fara í sund 11:30                          Brennó hjá 8., 9. og   10. bekkjum.   11:30 og 12:30          Grillveisla.     Skólaslit fara fram þriðjudaginn 9. júní.   Þriðjudaginn 9. júní verða skólaslit Holtaskóla í íþróttahúsinu við Sunnubraut. Nemendur mæta beint út í íþróttahús.   Dagskrá: 09:00 1.– 4. bekkir. 10:00              5. – 7. bekkir. 11:00              8. – 10. bekkir (útskrift 10. bekkinga) Eftir skólaslit fylgja nemendur 1. – 9. bekkja umsjónarkennurum sínum til heimastofu sinnar.   Nemendum 10. bekkja og foreldrum þeirra er boðið til kaffisamsætis að loknum skólaslitum. Nemendur eru minntir á að vera prúðbúnir og foreldrar eru hvattir til að mæta með börnum sínum.       Kveðjur Starfsfólk Holtaskóla ...
Lesa meira

25. maí 2009

Skólaferðalag 10. bekkinga

Í morgun héldu 10. bekkingar ásamt fararstjórum af stað í skólaferðalag norður í Skagafjörð.  Hópurinn byrjaði á því að stoppa í Nauthólsvík þar sem mörg hraustmennin létu sig ekki muna um það að taka hressilegan sundsprett í sjónum.  Að volkinu loknu var haldið af stað aftur og áði hópurinn í  valinkunnum ,,verslunum í alfaraleið", s.s. eins og Hyrnunni og Staðarskála.  Hópurinn kom á áfangastað, þ.e. að Ljósheimum í Skagafirði klukkan rétt rúmlega 18.  Í hönd fara stórskemmtilegir dagar þar sem fjölbreyttar og fjörugar ævintýraferðir verða í forgrunni. ...
Lesa meira

18. maí 2009

Frábær skemmtun hjá 1. bekkingum

Síðastliðinn fimmtudag buðu nemendur 1. bekkja foreldrum sínum á leiksýningu sem var samansett úr þjóðsögunum um Bakkabræður, Búkollu og Velvakandi og bræður hans.  Nemendur stóðu sig með mikilli prýði.  ...
Lesa meira

22. apríl 2009

Gleðilegt sumar

...
Lesa meira

3. apríl 2009

Gleðilega páska

Páskafrí nemenda hefst mánudaginn 6. apríl.  Skóli hefst aftur miðvikudaginn 15. apríl samkvæmt stundaskrá.  Starfsfólk Holtaskóla óskar nemendum og foreldrum gleðilegra páska. ...
Lesa meira

25. mars 2009

Árshátíð Holtaskóla 27. mars

Árshátíð Holtaskóla verður haldin 27. mars og hefst í íþróttahúsinu við Sunnubraut kl. 11. Að lokinni dagskrá í íþróttahúsinu er öllum boðið í kaffi í skólanum.  Það er í boði foreldra barna í skólanum. Vegna mikilla framkvæmda við íþróttahúsið er gestum bent á bílastæði fyrir neðan sundmiðstöðina, þaðan er stutt í íþróttahúsið.  Það er líka rétt að benda á að spáin er góð fyrir þennan dag og því tilvalið að ganga á árshátiðina sé þess nokkur kostur. Nánari upplýsingar er hægt að nálgast með því að smella á árshátíðardaginn á dagatalinu til hliðar og sækja póst sem sendur var í Mentor og bréf sem sent var foreldrum. Góða skemmtun ...
Lesa meira

13. mars 2009

PBS í Holtaskóla

Mánudaginn 16. mars hefst fyrsta framkvæmdaár PBS í Holtaskóla. Nú fá allir nemendur skólans kennslu í hegðunarvæntingum. Þá vita allir til hvers ætlast er af þeim, alls staðar. Nemendur fá viðurkenningu í formi miða sem kallast staðfesting en hann er staðfesting á hrósi. Geta nemendur fengið miðann þegar þau sýna góða hegðun og fara eftir reglum skólans. Staðfestinguna fá þau að koma með heim til að sýna en mikilvægt er að miðinn komi í skólann strax daginn eftir því við söfnum miðum bekkjarins saman og fáum umbun fyrir að standa okkur vel. Vonum að þið foreldrar takið virkan þátt í þessu með okkur. ...
Lesa meira

9. mars 2009

Börn í Reykjanesbæ - FFGÍR

FFGÍR (Foreldrafélög og foreldraráð grunnskólanna í Reykjanesbæ) býður forel drum á opinn fund um ,,Börn í Reykjanesbæ og velferð þeirra" í Virkjun á Vallarheiði laugardaginn 14. mars kl. 10:00 - 15:00.  Eftirfarandi málefni verða rædd á fundinum: -  Hvað verður í boði fyrir börnin okkar í sumar? -  Hvernig veður skólamálum barna okkar háttað á komandi vetri? -  Hvernig getur félagsþjónustan komið til móts við fjölskyldur? -  Hvað geta börn og foreldrar gert saman, þeim að kostnaðarlausu? Með von um að sem flestir sjái sér fært að mæta. FFGÍR ...
Lesa meira

27. febrúar 2009

Starfsdagur og þemadagar

Mánudaginn 2. mars er starfsdagur í Holtaskóla og eru nemendur því í fríi.  Þriðjudag, miðvikudag og fimmtudag (3. - 5. mars) verða þemadagar í Holtaskóla undir kjörorðunum ,,Virkni og ánægja".  Þessa daga munum við brjóta upp hefðbundið skólastarf og bjóða upp á fjölbreytta og skemmtilega stöðvavinnu við allra hæfi.  Nemendur mæta í skólann kl. 08:10 og fara heim kl. 13:20. ...
Lesa meira

13. febrúar 2009

Skólahreysti

Hann Dagur Brynjólfsson sendi okkur tengil inn á myndir sem hann tók af þriðja riðli í Skólahreysti í gærkvöldi. Þar eru myndir af krökkum úr Reykjanesbæ. Þökkum við Degi kærlega fyrir þetta. http://flickr.com/photos/dalli/sets/72157613701821027/ ...
Lesa meira

12. febrúar 2009

Tölum saman - Samskipti foreldra og unglinga um kynlíf

Foreldrafélag Holtaskóla bíður ykkur uppá fyrirlesturinn: „Tölum saman“ Samskipti foreldra og unglinga um kynlíf Kæra foreldri! Býr unglingur á heimilinu? Ef svo er, þá höldum við að umræður foreldra og unglinga um kynlíf eigi heima hjá þér. Það hefur vafalaust ekki farið framhjá nokkrum að unglingsárin eru tími mikilla breytinga sem taka á félags-, líffræði- og tilfinningalegum þáttum. Hvernig tekst þér sem foreldi að tala um alla þá þætti sem tengjast þessum miklu breytingum í lífi barnsins þíns? Málefni er varða kynlíf og kynhegðun eru ofarlega í huga flestra unglinga og margir foreldrar vita ekki hvernig þeir eigi að snúa sér í þeirri umræðu. Rannsóknir sýna að ef þessi málefni eru rædd þá byrja unglingar seinna að stunda kynlíf og þeir verða ábyrgari. Á fræðslufundinum er boðið upp á sameiginlega fræðslu fyrir foreldra og unglinga um kynlíf og kynhegðun. Fræðslufundurinn stendur í einn og hálfan klukkutíma. Foreldrafélagið stóð fyrir slíkum fyrirlestri síðast árið 2006 við mikla ánægju foreldra og unglinga. Fyrirlesarar eru: Dagbjört Ásbjörnsdóttir, mannfræðingur, MA Sigurlaug Hauksdóttir, félagsráðgjafi, MA Guðbjörg Edda Hermannsdóttir, félagsráðgjafi, MA Staður: Salur Holtaskóla Tími: Fimmtudagurinn 19. febrúar 2009 7. - 8. bekkur 17:30 - 19:00 9. - 10. bekkur 20:00 - 21:30 ...
Lesa meira

9. febrúar 2009

Myndir og myndband frá Laugum

Myndir og myndband frá Laugum er komið inn á heimasíðuna. Myndbandið sýnir Holtaskóla og Hraunvallaskóla. ...
Lesa meira

6. febrúar 2009

Áætluð heimkoma 9. bekkinga

Ferðalangarnir í 9. bekk eru væntanlegir heim um kl. 14:15 ...
Lesa meira

1. febrúar 2009

Inga Sveina farin til annarra starfa

Inga Sveinbjörg Ásmundsdóttir, umsjónarkennari 9. ISÁ er horfin til annarrra starfa. Við bekknum tók Gunnar Stefánsson. Við óskum Ingu Sveinu velfarnaðar og þökkum henni samstarfið á liðnum árum. Sjá myndir hér til hliðar þegar bekkurinn kvaddi Ingu Sveinu og bauð síðan Gunnar velkominn. ...
Lesa meira

16. janúar 2009

Samskiptadagur

Samskiptadagur er þriðjudaginn 20. janúar. Þá mæta nemendur ásamt foreldrum/forráðamönnum í viðtal hjá umsjónarkennara. Engin kennsla fer fram þennan dag. Frístund er opin frá kl. 08:10. Þeir sem hyggjast nota það þurfa að hafa samband við forstöðumann Frístundar. ...
Lesa meira

20. desember 2008

Jólafrí nemenda

Nemendur fara í jólafrí að loknum Litlu jólunum föstudaginn 19. desember.  Skóli hefst aftur mánudaginn 5. janúar samkvæmt stundatöflu.  Starfsfólk Holtaskóla vill óska samstarfsfólki, foreldrum/forráðamönnum og nemendum gleðilegra jóla og farsældar á komandi ári. ...
Lesa meira

17. desember 2008

Litlu jólin

Litlu jólin fara fram á föstudaginn.  Fyrst munu nemendur í oddatölubekkjum sýna atriði úti í íþróttahúsi eftir það fara nemendur aftur inn í skóla þar sem bekkirnir halda stofujól.  Nemendur mæta kl. 09:30 í skólann og Litlu jólin hefjast kl. 09:45 úti í íþróttahúsi.  Gert er ráð fyrir að stofujólunum verði lokið á bilinu 11:30 - 11:45. ...
Lesa meira

7. desember 2008

Jólabingó

1.-2. bekkur mánudaginn 8. desember kl.17:30-19:00 3.-4. bekkur þriðjudaginn 9. desember kl.17:30-19:00 5.-10. bekkur þriðjudaginn 9. desember kl.19:30-20:30 Foreldrar eru hvattir til að mæta með börnum sínum. Spjaldið mun kosta 150 krónur og það er sjoppa á staðnum. ...
Lesa meira

27. nóvember 2008

Foreldrafélagið laufabrauðsbakstur

Foreldrafélagið verður með laufabrauðsbakstur í sal Holtaskóla, fimmtudaginn 27. nóvember nk. kl. 17 – 19 .   Laufabrauðin verða seld á staðnum og eru 6 laufabrauð saman í pakka á 500 kr (ath. aðeins reiðufé). Hver og einn sker út og skreytir að eigin vild og fer steikingin fram í heimilisfræðistofunni.     Mikilvægt er að fullorðinn komi með börnunum, bæði til að vera þeim innan handar en ekki síst vegna steikingarinnar. Feitin er heit og því viljum við ekki börnin inn í eldhúsið nema í fylgd með fullorðnum!   Tíundi bekkur mun selja pizzu og gos á vægu verði. Vinsamlega komið með að heiman:   Laufabrauðshjól, einnig hægt að nota hnífa. Skurðabretti og hnífa Ílát undir steikta laufabrauðið Jólaskapið J Foreldrafélag Holtaskóla ...
Lesa meira

18. nóvember 2008

Fræðslufundur um net- og tölvuleikjafíkn

Ræður tölvan lífi barnsins þíns? Net- og tölvuleikjafíkn er raunverulegt og vaxandi vandamál en hingað til hafa foreldrar e.t.v. ekki verið nægjanlega vakandi fyrir þeim hættum sem of mikil tölvunotkun getur haft í för með sér fyrir börn þeirra og unglinga. Miðvikudaginn 19. nóvember nk. milli kl. 17.00 - 19.00 verður í Duushúsinu opinn fræðslufundur um net- og tölvuleikjafíkn og kennsla á Parental control, forrit sem stýrir netnotkun. Fyrirlesarar eru: Eyjólfur Örn Jónsson sálfræðingur Hafþór B. Birgisson tómstunda– og félagsmálafræðingur Kaffi á könnunni . ...
Lesa meira

17. nóvember 2008

Starfsdagur 28. nóvember

Föstudaginn 28. nóvember verður starfsdagur í Holtaskóla. Holtaskjól mun taka á móti nemendum sínum frá kl: 8:10. – 17:00. Sækja þarf um vistun fyrir lok dags 21. nóvember. Ath. Börnin þurfa að taka með sér morgunnesti og það verður dótadagur og þau mega koma með dót að heiman. Kær kveðja, Starfsfólk Holtaskjóls ...
Lesa meira