Skóladagatal

Skóladagatal fyrir skólaárið 2023-2024 hefur verið samþykkt af fræðsluráði Reykjanesbæjar. Skóladagatal er fyrst samþykkt á starfsmannafundi, í framhaldi af því er skóladagatalið lagt fyrir skólaráð til umsagnar og samþykktar og loks fyrir fræðsluráð bæjarins.

Samkvæmt 28. gr laga um grunnskóla skal starfstími nemenda vera á hverju skólaári að lágmarki í níu mánuði og vera á tímabilinu 20. ágúst til 10. júní. Undirbúningsdagar kennara eru samtals 8 og dreifast fyrir upphaf og eftir lok skóladaga nemenda og eru fyrir utan starfstíma skóla. Á starfstíma skóla eru 180 nemendadagar, 10 skertir dagar (fjólubláir), 10 uppbrotsdagar (bláir), 5 starfsdagar (gulir), vetrarfrí (grátt) og jóla- og páskaleyfi (appelsínugult).

Skerta daga mæta nemendur styttra í skólann eins og t.d. skólabyrjun, samskiptadaga, jólahátíð, árshátíð, öskudag og fl. Uppbrotsdagar eru einstaka skóladagar þar sem stundatöflu nemenda er breytt en upphaf og lok skóladags er samkvæmt hefðbundinni töflu. Starfsdagar á starfstíma skóla eru nýttir í undirbúning kennslu, námsmat og aðra faglega vinnu. Heimilt er að taka upp vetrarorlof svo fremi að það rúmist innan marka skóladagatalsins og fækkar þá orlofsdögum að sumri.

Skóladagatal fyrir skólaárið 2023-2024