Áhrif boðaðs verkfalls á skólastarf

Upplýsingar vegna boðaðs verkfalls starfsfólks í Stéttarfélaginu STFS (Starfsmannafélagi Suðurnesja) þriðjudaginn 23. maí og til hádegis fimmtudaginn 25.maí. 
 
Boðað verkfall starfsfólks STFS mun hafa áhrif á skólastarf þá daga sem það stendur yfir. Í fyrstu er búið að boða til verkfalls dagana 23. maí til kl. 12:00, 24. maí allan daginn og 25. maí til kl. 12:00.  
Starfsfólkið sem þetta varðar eru umsjónarmaður fasteignar, skrifstofustjóri, stuðningsfulltrúar og starfsfólk í frístund. 

Þetta hefur í för með sér mjög skerta starfsemi á skrifstofu skólans þessa daga og ekki verður svarað í síma. Störf sem stuðningsfulltrúar sinna falla niður s.s. gæsla frá 8:00-8:10, stuðningur inni í bekk, gæsla í frímínútum, aðstoð í hádegi, gæsla í hádegi og frístundaskólinn verður lokaður 24. maí.  
 
Við vonum að foreldrar sýni þessum aðgerðum og skertu skólastarfi skilning en við höfum leitað leiða til að hafa sem mest skólastarf þessa daga. Á sama tíma leggjum við okkur fram um að virða þær leikreglur sem gilda þegar til verkfalls kemur og göngum ekki í störf fólks sem berst fyrir bættum kjörum enda er það lögbrot. 
 

Þeir árgangar sem geta farið í vorferðir í þessari viku eru 4. 7. og 10. bekkir. Öðrum ferðum hefur verið frestað. 
 
Ef til verkfalls kemur verður kennsla og starf í Holtaskóla með eftirfarandi hætti: 

 
Þriðjudagur 23. maí  
Íþróttahús 1.-4. bekkur. Kennarar opna stofur kl. 08:10. Kennsla samkvæmt stundaskrá til kl. 09:30 en þá fara nemendur heim. Nemendur mæta síðan aftur í skólann kl. 12:00 samkvæmt stundaskrá og þar til kennslu lýkur kl. 13:15. Frístund er opin frá kl. 13:15 fyrir þau börn sem þar eru skráð. Ekki er boðið upp á hádegismat. 

Hljómahöll 5. og 6. bekkur. Kennarar opna stofur kl. 08:10. Kennsla samkvæmt stundaskrá til kl. 09:30 en þá fara nemendur heim (rúta til staðar). Nemendur mæta síðan aftur í skólann kl. 12:00 (rútan fer frá Holtaskóla kl. 11:50). Kennsla samkvæmt stundaskrá til kl. 13:40. ATH 6. bekkur fer í sund kl. 12:15. Ekki er boðið upp á hádegismat. 

Keilir 8. - 9. bekkur. Kennsla samkvæmt stundaskrá frá kl. 8.30 til kl. 9.50 en þá fara nemendur heim (rúta til staðar). Nemendur mæta síðan aftur í skólann kl. 12:00 (rútan fer frá Holtaskóla kl. 11:45). Kennsla samkvæmt stundaskrá eftir hádegi, ekki er boðið upp á hádegismat. 
 
10. bekkur í útskriftarferð. 
7. bekkur á Reykjum 
 
Eikin er lokuð til kl. 12.00. 
 
Foreldrar tilkynni forföll nemenda í gegnum Mentor, síminn lokaður til kl. 12.00. 
 

Miðvikudagur 24. maí  
Íþróttahús 1.-4. bekkur. Kennarar opna stofur kl. 08:10. Kennsla samkvæmt stundaskrá til kl. 09:30 en þá fara nemendur heim. Engin frekari kennsla þennan dag og frístund lokuð. 

Hljómahöll 5. og 6. bekkur. Kennarar opna stofur kl. 08:10. Kennsla samkvæmt stundaskrá til kl. 09:30 en þá fara nemendur heim (rúta til staðar). Engin frekari kennsla þennan dag. 

Keilir 8. - 9. bekkur. Kennsla samkvæmt stundaskrá frá kl. 8.30 til kl. 9.50 en þá fara nemendur heim (rúta til staðar). Engin frekari kennsla þennan dag. 
 
10. bekkur í útskriftarferð. 
7. bekkur á Reykjum 
 
Eikin er lokuð 
 
 
Fimmtudagur 25. maí  
Íþróttahús 1.-4. bekkur. Kennarar opna stofur kl. 08:10. Kennsla samkvæmt stundaskrá til kl. 09:30 en þá fara nemendur heim. Nemendur mæta síðan aftur í skólann kl. 12:00 samkvæmt stundaskrá og þar til kennslu lýkur kl. 13:15. Frístund er opin frá kl. 13:15 fyrir þau börn sem þar eru skráð. Ekki er boðið upp á hádegismat. 

Hljómahöll 5. og 6. bekkur. Kennarar opna stofur kl. 08:10. Kennsla samkvæmt stundaskrá til kl. 09:30 en þá fara nemendur heim (rúta til staðar). Nemendur mæta síðan aftur í skólann kl. 12:00 (rútan fer frá Holtaskóla kl. 11:50). Kennsla samkvæmt stundaskrá til kl. 13:40. Ekki er boðið upp á hádegismat. 
 
Keilir 8. - 9. bekkur. Kennsla samkvæmt stundaskrá frá kl. 8.30 til kl. 9.50 en þá fara nemendur heim (rúta til staðar). Nemendur mæta síðan aftur í skólann kl. 12:00 (rútan fer frá Holtaskóla kl. 11:45). Kennsla samkvæmt stundaskrá eftir hádegi, ekki er boðið upp á hádegismat. 
 
10. bekkur í útskriftarferð. 
7. bekkur á Reykjum 
 
Eikin er lokuð til kl. 12:00 
 
Foreldrar tilkynni forföll nemenda í gegnum Mentor, síminn lokaður til kl. 12:00.