Göngum í skólann

Skólasetning hefur nú farið fram hjá okkur og nemendur streyma aftur í skólann eftir sumarfrí. Við viljum hvetjum starfsfólk, foreldra og nemendur til að tileinka sér góðar venjur og ganga til og frá skóla strax í upphafi skólaárs. 

Nú í upphafi skólaársins viljum við hvetja alla nemendur til að ganga í skólann. Markmiðið er að hvetja starfsfólk og nemendur til að tileinka sér virkan ferðamáta í og úr skóla og auka færni þeirra til að ferðast á öruggan hátt í umferðinni. Ein einfaldasta leiðin til að auka hreyfingu í daglegu lífi er að velja virkan ferðamáta, svo sem göngu, hjólreiðar, hlaup, línuskauta og hjólabretti. Ávinningurinn er ekki aðeins bundinn við andlega og líkamlega vellíðan heldur er þetta einnig umhverfisvæn og hagkvæm leið til að komast á milli staða.