Röskun á skólastarfi vegna fyrirhugaðs verkfalls

Kæru foreldrar/forráðamenn Dear parents,

English below

Eins og ykkur er eflaust kunnugt um hafa aðildarfélög BSRB boðað til verkfallsaðgerða mánudaginn 9. mars og þriðjudaginn 10. mars. Komi til verkfalls munu stuðningsfulltrúar og starfsmenn aðrir en kennarar og stjórnendur leggja niður störf. Hefðbundin sund- og íþróttakennsla verður ekki þessa daga þar sem verkfall á líka við um starfsmenn íþróttahúss og sundlaugar. Því þurfa nemendur ekki að koma með íþrótta- eða sundföt. Íþrótta- og sundkennarar munu sinna kennslu með öðrum hætti en venjulega. Frístundaheimilið verður lokað og ekki verður boðið upp á hádegismat þessa daga.

Komi til verkfalls er óhjákvæmilegt að stytta viðverutíma nemenda í skólanum. Til að gæta fyllsta öryggis verður kennsla með eftirfarandi hætti þessa tvo daga:

Mánudagur 9. mars
5.-10 bekkur mætir í skólann kl. 08:10-09:30
1.-4. bekkur mætir í skólann kl. 09:55-11:15

Þriðjudagur 10. mars.
8. og 10. bekkur mætir í skólann kl. 08:10-09:30
5.-7. bekkur mætir í skólann kl. 08:10-09:30
1.-4. bekkur mætir í skólann kl. 09:55-11:15
9. bekkur mætir í skólann kl. 09:55 í samræmt könnunarpróf í íslensku

Foreldrar eru vinsamlega beðnir um að virða tímasetningar og ná í börnin sín á tilsettum tíma ef þau ganga ekki sjálf heim.
Vinsamlegast notið Mentor til að tilkynna veikindi/leyfi eða sendið tölvupóst á holtaskoli@holtaskoli.is
Vert er að taka það fram að áhrif verfalls verður mismunandi í skólum Reykjanesbæjar.
Foreldrar eru hvattir til að fylgjast með fréttum sunnudaginn 8. mars til að geta brugðist við á mánudagsmorgun ef til verkfalls kemur.

Kær kveðja,
Helga Hildur
---------------------------------
Dear parents,

Due to a planned strike on behalf of BSRB a large group of our staff will not attend work on Monday (March 9th) and Tuesday (March 10th) if a settlement has not be reached before that time.

For that reason schooling in Holtaskóli will be as followed for those days:

Monday
5th.-10th grades will attend school from 08:10-09:30
1st-4th grades will attend school from 09:55-11:15

Thuesday
8th and10th grades will attend school from 08:10-09:30
5th-7th grades will attend school from 08:10-09:30
1st-4th grades will attend school from 09:55-11:15
9th grade will attend school to take the National Examination test in Icelandic at 09:55

No lunch will be served at the school on those days and Frístund will also be closed.
The gym and pool will be closed so students will be taught in their classroom.
Please contact us through Mentor or email (holtaskoli@holtaskoli.is) if you need to reach the school.
All students will be sent home at the end of their school day so it is important that parents who are going to pick up their children will be on time.
We recommend that parents follow the news next Sunday, March 8th, for more information on the strike.
Note that circumstances differ in the schools in Reykjanesbær so schedules might not be the same for all students of Reykjanesbær.

Best regards,
Helga Hildur