Skólaslit 2

Ævar Þór Benediktsson rithöfundur kom í heimsókn til okkar og kynnti Skólaslit 2. Skólaslit 2 er spennandi hrollvekja sem hefur það markmið að vekja lestrarupplifun fyrir nemendur, í raun alla lesendur sem vilja taka þátt í verkefninu. Lestrarupplifunin er samstarfsverkefni fræðslusviðs Reykjanesbæjar og Ævar Þórs Benediktsson. Hér má finna heimasíðu verkefnisins. Á hverjum virkum degi í október mun birtast einn kafli úr sögunni ásamt myndum sem Ari Hlynur Guðmundsson Yates teiknar. Nú bíðum við spennt eftir fyrsta kafla í Skólaslitum 2.