Sumarfrístund fyrir börn fædd 2018

Frístundaheimili grunnskólanna, fyrir tilvonandi 1. bekkinga (börn fædd 2018), eru opin frá 9. ágúst til skólasetningar. Markmiðin með þessari opnun eru m.a. að brúa bilið milli leik- og grunnskólagöngu nemenda, að aðlögun nýrra leikskólabarna geti hafist sem fyrst að hausti og að aðlaga tilvonandi 1. bekkinga í grunnskólann sinn.

Skráning hefst mánudaginn 15. apríl og fer fram í gegnum www.mittreykjanes.is og er skráning fyrir þetta tímabil ótengd skráningu fyrir frístundaheimilin eftir að skólastarf hefst. Gert er ráð fyrir því að foreldrar séu búnir að skrá börnin sín fyrir 10. maí.

Opnunartíminn verður frá 9:00 – 15:00. Börnin fá hádegismat og síðdegisnesti.

*15. ágúst verða frístundaheimilin opin frá 10:00 – 15:00 þar sem starfsmannafundur er í upphafi dags.

Nánari upplýsingar má finna hér