- Skólinn
- Foreldrar
- Stoðþjónusta
- Hagnýtt
- Nám & kennsla
- Starfsfólk
Í kvöld fór fram undankeppni Skólahreysti og sigraði lið Holtaskóla sinn riðil með glæsibrag. Í liði Holtaskóla eru þau Svanur Bergvins Guðmundsson sem keppti í upphífingum og dýfum, Auður Eyfjörð Ingvarsdóttir keppti í armbeygjum og hreystigreip og í hraðabrautinni kepptu þau Benedikt Árni Hermannsson og Elva Björg Ragnarsson. Varamenn eru þau Mikael Fannar Arnarsson og Heiðrún Lind Sævarsdóttir.
Svanur Bergvins stóð uppi sem sigurvegari í bæði upphífingum og dýfum og er gaman að segja frá því að með sigrinum í upphífingum setti Svanur nýtt Íslandsmet! Þau Benedikt Árni og Elva Björg unnu einnig hraðabrautina í kvöld.
Við óskum þessum flottu fulltrúum Holtaskóla innilega til hamingju með glæsilegan árangur. Með sigrinum hefur Holtaskóli tryggt sér sæti í úrslitum sem haldin verða laugardaginn 24. maí í Laugardagshöllinni.
Áfram Holtaskóli!
Við Sunnubraut | 230 Reykjanesbæ Sími á skrifstofu: 420-3500 Netfang: holtaskoli@holtaskoli.is |
Skrifstofa skólans er opin frá |
Tilkynningar um leyfi eða veikindi nemenda: 420 3500 / holtaskoli@holtaskoli.is