Upphaf skólaárs 2020-2021

Kæru foreldrar/forráðamenn

 

Líkt og í fyrra verður ekki hefðbundin skólasetning í Holtaskóla. Skóli hefst mánudaginn 24. ágúst. Sökum takmarkana vegna kórónuveirufaraldar biðjum við foreldra um að koma ekki með börnum sínum inn í skólann. Ef það er nauðsynlegt, þá aðeins eitt foreldri og vinsamlegast virðið tveggja metra regluna. Nemendur í 2. – 10. bekk mæta í heimastofur kl. 8.10 til umsjónarkennara sinna. Nemendur í 1. bekk mæta á sal skólans í tvennu lagi. Kennsla hefst samkvæmt stundaskrá kl. 8.50. Við biðjum foreldra að skoða á Mentor stundaskrár nemenda og huga að t.d. íþróttum og sundi. Sama stefna er líkt og í fyrra varðandi nesti og biðjum við um að nemendur séu með grænmeti/ávexti eða brauð með hollu áleggi og vatn að drekka. Nestistíminn er ætlaður sem millibiti og gerum við ráð fyrir að allir nemendur borði staðgóðan morgunverð heima áður en haldið er í skóla.

 

Á morgun finnið þið upplýsingar um heiti bekkja á Mentor en heimastofur eru listaðar hér að neðan.

 

Nemendur í 2.-10. bekk – mæting kl. 8.10.

2. GW. stofa 5

2. HF. stofa 6

3. LRR/BG. stofa 2

4. HBH. stofa 4

4. SJ. stofa 3

5. HHI. stofa 13

5. SM. stofa 14

6. EKE stofa 15

6. HS. stofa 16

7. EÓS. stofa 30

7. EÞE. stofa 31

8. MLJ. stofa 23

8. RI. stofa 24

9. EH. stofa 17

9. MS. stofa 26

10. SBS. stofa 25

10. VIS. stofa 21

 

Nemendur í 1. bekk

1. ES mætir á sal skólans kl. 08:30

1. HRJ mæta á sal skólans kl. 09:00

 

Við ætlumst til þess að aðeins eitt foreldri komi með hverju barni í 1. bekk. Komi til þess að foreldri þurfi að vera áfram með sínu barni er gerð krafa um að viðkomandi verði með grímu og virði tveggja metra regluna.

 

Áverkni og samstaða okkar allra er mikilvægasta verkfæri okkar í því verkefni sem Covid-19 faraldurinn er og því mikilvægt að hlýta öllum reglugerðum og fyrirmælum sem settar hafa verið. Mikilvægt er að halda nemendum heima ef þau sýna einhver einkenni sjúkdómsins sem eru t.d. hiti, hósti, þreyta, vöðva-, bein- eða höfuðverkur.

 

Hlökkum til að sjá alla á mánudaginn.

Starfsfólk Holtaskóla.