Skólaslit - breyting á skóladagatali

Samkvæmt skóladagatali áttu skólaslit Holtaskóla að fara fram föstudaginn 6. júni á sal Fjölbrautaskóla Suðurnesja. Vegna framkvæmda í FS þurfum við að færa skólaslitin í Hljómahöll og hafa þau seinni partinn fimmtudaginn 5. júní. Menntaráð sem og skólaráð Holtaskóla hafa verið upplýst um breytinguna. Hér má finna nýtt skóladagatal

Skólaslit Holtaskóla í Hljómahöll fimmtudaginn 5. júní.  

Dagskrá: 
Kl. 15:00 5.-7. bekkir
Kl. 16:00 1.-4. bekkir
Kl. 17:00 8.-10. bekkir (útskrift 10. bekkinga) 

Nemendur eru minntir á að vera snyrtilegir til fara og foreldrar eru hvattir til að mæta með börnum sínum.  

Að skólaslitum loknum er nemendum 10. bekkja og foreldrum þeirra boðið til kaffisamsætis. 

 

Síðustu dagar skólaársins eru eftirfarandi: 

4. júní – Holtasprettur 
Þessi dagur er skertur nemendadagur og mæta nemendur kl. 9:30 og lýkur deginum um kl. 11:30. Frístund er opin fyrir þá nemendur sem þar eru skráðir. 

5. júní – Vorhátíð Holtaskóla og skólaslit í Hljómahöll 
Þessi dagur er skertur nemendadagur og mæta nemendur kl. 10:00-11:30. Frístund er opin til kl. 15:30 (vegna skólaslita) fyrir þá nemendur sem þar eru skráðir. 

Skólaslit í Hljómahöll, 5.-7. bekkir kl. 15:00, 1.-4. bekkir kl. 16:00, 8.-10. bekkir kl. 17:00