Upplýsingar - Skólasetning

Kæru foreldrar/forráðamenn.

 

Skólasetningin á morgun verður með breyttu sniði þetta haustið en í framhaldi af skólasetningu hefst fyrsti skóladagurinn hjá nemendum.

 

Skólasetning kl. 08:10

1.-5. bekkur á sal skólans

6. -10. bekkur í íþróttahúsi

 

Að lokinni setningu fara umsjónarkennarar ásamt nemendum og foreldrum í heimastofur þar sem kennarar fara yfir nauðsynlega þætti í skólastarfinu. Formleg kennsla hefst síðan í framhaldinu samkvæmt stundaskrá, sjá stundatöflur á Mentor.is.

  • Skráning í mat hjá Skólamat hefst 22. ágúst en þau börn sem eiga að vera í áskrift fá að sjálfsögðu hádegismat frá fyrsta degi.
  • Muna eftir að koma með nesti. Hugum að heilsunni og höfum það holt og gott, t.d. brauð með hollu áleggi, ávexti og/eða grænmeti. Drykkir vatn og mjólk. Gott að hafa vatnsbrúsa í töskunni. Vinsamlegast sendið börnin ykkar ekki með skyr, jógúrt og/eða boost í nesti.
  • Mjólkuráskrift fram að jólum kostar 2500 kr., sjá viðhengi.
  • Reykjanesbær skaffar öll námsgögn líkt og síðustu tvö ár en heima er nauðsynlegt að eiga blýant, strokleður, reglustiku, liti og vasareikni.
  • Ekki er þörf á að koma með íþróttafatnað fyrir þá nemendur sem eiga að vera í leikfimi á morgun.
  • Koma með skólatösku á setninguna.

 

Hlökkum til að sjá ykkur.

Kær kveðja,

Helga Hildur