- Skólinn
- Foreldrar
- Stoðþjónusta
- Hagnýtt
- Nám & kennsla
- Starfsfólk
Á mánudaginn kom Ævar Þór Benediktsson rithöfundur í heimsókn og las upp úr væntanlegri bók sinni, Teiknimyndaráninu, fyrir nemendur 5.-7. bekkja. Bókin fjallar um 12 ára gamlan strák sem ákveður að fremja svakalegasta rán Íslandssögunnar þegar hann kemst að því að besti vinur hans er að fara að flytja af landi brott. Kaflinn sem nemendur fengu að heyra um var svo sannarlega viðburðarríkur, en hann innihélt atburðarrás þar sem dós af Surströmming síld kom við sögu ásamt upphlaupi og uppköstum. Í lok upplestrar fengu nemendur að spyrja Ævar spurninga og var gaman að sjá hversu áhugasamir nemendur voru.

